Stekkjartún 32 – Byggt af Bergfestu

Stekkjartún 32 er fjögurra hæða fjölbýlishús með lyftu, með 22 íbúðum, staðsett í Naustahverfi á Akureyri, byggt árin 2017-2018.

Íbúðirnar eru í fjórum stærðum:

65 m2  //  2-3 herbergja
75 m2  //  3-4 herbergja
84 m2  //  3-4 herbergja
95,5 m2  //  3-4 herbergja

Að auki fylgir hverri íbúð sérgeymsla á jarðhæð auk sameiginlegrar geymslu fyrir hjól og vagna.  Sérstæði í opnu bílskýli mun fylgja með íbúðum á 2-4 hæð.  Íbúðirnar eru með opnar svalir sem snúa til suðurs.

Einungis um 230 m eru í grunnskóla og leikskóla og ekki þarf að fara yfir umferðargötu.  Innan göngufæris eru einnig framhaldsskólar, sjúkrahús, verslunin Bónus og golfvöllurinn.  Frábærar gönguleiðir eru í næsta nágrenni.

Allt efni og teiknaðar þrívíddarmyndir á heimasíðu eru birtar með fyrirvara um hugsanlegar villur. Með þrívíddarmyndum er reynt að gefa eins góða mynd og hægt er. Ef texta byggingarlýsingar og skilalýsingar ber ekki saman gildir byggingarlýsing.

Upplýsingar um íbúðirnar

Stekkjartún

Veldu svæði á myndinni til að fá upplýsingar um viðkomandi íbúð. Athugið, íbúðirnar eru allar seldar.

Stekkjartún
Íbúð 0101 - SELD Íbúð 0201 - SELD Íbúð 301 - SELD Íbúð 401 - SELD Íbúð 102 - SELD Íbúð 202 - SELD Íbúð 302 - SELD Íbúð 402 - SELD Íbúð 103 - SELD Íbúð 203 - SELD Íbúð 303 - SELD Íbúð 403 - SELD Íbúð 104 - SELD Íbúð 204 - SELD Íbúð 304 - SELD Íbúð 404 - SELD Íbúð 205 - SELD Íbúð 305 - SELD Íbúð 405 - SELD Íbúð 206 - SELD Íbúð 306 - SELD Íbúð 406 - SELD

Íbúð 0101 - SELD

Stekkjartun Akureyri

Eignin skiptist í:

Íbúð 0101 er 97,5m² og er staðsett austast á neðstu hæð hússins. Íbúðin inniheldur baðherbergi/þvottahús, anddyri, tvö herbergi, stofu, eldhús og geymslu.

Geymsla er 2,0m² á 1. hæð, verönd, sérafnotaflötur framan við verönd, sérmerkt bílastæði með rafmagnstengli og hlutdeild í sameign.

Innbyggð uppþvottavél fylgir íbúðinni.

Mynddyrasími er í íbúðinni

Ljósleiðari er tengdur úr sameign inn í hverja íbúð og þaðan í tengil í stofu.

Stærð: 97,5m²

Geymsla í sameign: 2,0m²

Svefnherbergjafjöldi: 2

Geymsla í íbúð: 1

Hæð: 1

Íbúð 0201 - SELD

Stekkjartun Akureyri

Eignin skiptist í:

Íbúð 0201 er 97,5m² og er staðsett austast á annarri hæð hússins. Íbúðin inniheldur baðherbergi/þvottahús, anddyri, tvö herbergi, stofu, eldhús og geymslu.

Geymsla er 2,0m² á 2. hæð, svalir, sérmerkt bílastæði með rafmagnstengli og hlutdeild í sameign.

Innbyggð uppþvottavél fylgir íbúðinni.

Mynddyrasími er í íbúðinni

Ljósleiðari er tengdur úr sameign inn í hverja íbúð og þaðan í tengil í stofu.

Stærð: 97,5m²

Geymsla í sameign: 2,0m²

Svefnherbergjafjöldi: 2

Geymsla í íbúð: 1

Hæð: 2.

Íbúð 301 - SELD

Stekkjartun Akureyri

Eignin skiptist í:

Íbúð 0301 er 103,3m² og er staðsett austast á þriðju hæð hússins. Íbúðin inniheldur baðherbergi/þvottahús, anddyri, tvö herbergi, stofu, eldhús og geymslu.

Geymsla er 7,8m² á 1. hæð, verönd, svalir, sérmerkt bílastæði með rafmagnstengli og hlutdeild í sameign.

Innbyggð uppþvottavél fylgir íbúðinni.

Mynddyrasími er í íbúðinni

Ljósleiðari er tengdur úr sameign inn í hverja íbúð og þaðan í tengil í stofu.

Stærð: 103,3m²

Geymsla í sameign: 7,8m²

Svefnherbergjafjöldi: 2

Geymsla í íbúð: 1

Hæð: 3.

Íbúð 401 - SELD

Stekkjartun Akureyri

Eignin skiptist í:

Íbúð 0401 er 103,6m² og er staðsett austast á fjórðu hæð hússins. Íbúðin inniheldur baðherbergi/þvottahús, anddyri, tvö herbergi, stofu, eldhús og geymslu.

Geymsla er 8,1m² á 1. hæð, verönd, svalir, sérmerkt bílastæði með rafmagnstengli og hlutdeild í sameign.

Innbyggð uppþvottavél fylgir íbúðinni.

Mynddyrasími er í íbúðinni

Ljósleiðari er tengdur úr sameign inn í hverja íbúð og þaðan í tengil í stofu.

Stærð: 103,6m²

Geymsla í sameign: 8,1m²

Svefnherbergjafjöldi: 2

Geymsla í íbúð: 1

Hæð: 4

Íbúð 102 - SELD

Stekkjartún Akureyri

Eignin skiptist í:

Íbúð 0102 er 77,3m² og er staðsett austan megin í miðju á neðstu hæð hússins. Íbúðin inniheldur baðherbergi/þvottahús, anddyri, tvö herbergi, stofu, eldhús og geymslu.

Geymsla er 2,3m² á 1. hæð, verönd, sérafnotaflötur framan við verönd, sérmerkt bílastæði með rafmagnstengli og hlutdeild í sameign.

Innbyggð uppþvottavél fylgir íbúðinni.

Mynddyrasími er í íbúðinni

Ljósleiðari er tengdur úr sameign inn í hverja íbúð og þaðan í tengil í stofu.

Stærð: 77,3m²

Geymsla í sameign: 2,3m²

Svefnherbergjafjöldi: 2

Geymsla í íbúð: 1

Hæð: 1.

Íbúð 202 - SELD

Stekkjartún Akureyri

Eignin skiptist í:

Íbúð 0202 er 77,3m² og er staðsett austan megin í miðju á annarri hæð hússins. Íbúðin inniheldur baðherbergi/þvottahús, anddyri, tvö herbergi, stofu, eldhús og geymslu.

Geymsla er 2,3m² á 4. hæð, svalir, sérmerkt bílastæði með rafmagnstengli og hlutdeild í sameign.

Innbyggð uppþvottavél fylgir íbúðinni.

Mynddyrasími er í íbúðinni

Ljósleiðari er tengdur úr sameign inn í hverja íbúð og þaðan í tengil í stofu.

 Stærð: 77,3m²

Geymsla í sameign: 2,3m²

Svefnherbergjafjöldi: 2

Geymsla í íbúð: 1

Hæð: 2.

Íbúð 302 - SELD

Stekkjartún Akureyri

Eignin skiptist í:

Íbúð 0302 er 77,3m² og er staðsett austan megin í miðju á þriðju hæð hússins. Íbúðin inniheldur baðherbergi/þvottahús, anddyri, tvö herbergi, stofu, eldhús og geymslu.

Geymsla er 2,3m² á 1. hæð, svalir, sérmerkt bílastæði með rafmagnstengli og hlutdeild í sameign.

Innbyggð uppþvottavél fylgir íbúðinni.

Mynddyrasími er í íbúðinni

Ljósleiðari er tengdur úr sameign inn í hverja íbúð og þaðan í tengil í stofu.

Stærð: 77,3m²

Geymsla í sameign: 2,3m²

Svefnherbergjafjöldi: 2

Geymsla í íbúð: 1

Hæð: 3.

Íbúð 402 - SELD

Stekkjartún Akureyri

Eignin skiptist í:

Íbúð 0402 er 77,3m² og er staðsett austan megin í miðju á fjórðu hæð hússins. Íbúðin inniheldur baðherbergi/þvottahús, anddyri, tvö herbergi, stofu, eldhús og geymslu.

Geymsla er 2,3m² á 1. hæð, svalir, sérmerkt bílastæði með rafmagnstengli og hlutdeild í sameign.

Innbyggð uppþvottavél fylgir íbúðinni.

Mynddyrasími er í íbúðinni

Ljósleiðari er tengdur úr sameign inn í hverja íbúð og þaðan í tengil í stofu.

Stærð: 77,3m²

Geymsla í sameign: 2,3m²

Svefnherbergjafjöldi: 2

Geymsla í íbúð: 1

Hæð: 4.

Íbúð 103 - SELD

Stekkjartún Akureyri

Eignin skiptist í:

Íbúð 0103 er 70,6m² og er staðsett austan megin við stigahús á neðstu hæð hússins. Íbúðin inniheldur baðherbergi/þvottahús, anddyri, eitt herbergi, stofu, eldhús og geymslu.

Geymsla er 5,3m² á 1. hæð, verönd, sérafnotaflötur framan við verönd, sérmerkt bílastæði með rafmagnstengli og hlutdeild í sameign.

Innbyggð uppþvottavél fylgir íbúðinni.

Mynddyrasími er í íbúðinni

Ljósleiðari er tengdur úr sameign inn í hverja íbúð og þaðan í tengil í stofu.

Stærð: 70,6m²

Geymsla í sameign: 5,3m²

Svefnherbergjafjöldi: 1

Geymsla í íbúð: 1

Hæð: 1.

Íbúð 203 - SELD

Stekkjartún Akureyri

Eignin skiptist í:

Íbúð 0203 er 69,8m² og er á annarri hæð hússins vinstra megin við stigahús. Íbúðin inniheldur baðherbergi/þvottahús, anddyri, eitt herbergi, stofu, eldhús og geymslu.

Geymsla er 4,5m² á 1. hæð, svalir, sérmerkt bílastæði með rafmagnstengli og hlutdeild í sameign.

Innbyggð uppþvottavél fylgir íbúðinni.

Mynddyrasími er í íbúðinni

Ljósleiðari er tengdur úr sameign inn í hverja íbúð og þaðan í tengil í stofu.

Stærð: 69,8m²

Geymsla í sameign: 4,5m²

Svefnherbergjafjöldi: 1

Geymsla í íbúð: 1

Hæð: 2.

Íbúð 303 - SELD

Stekkjartún Akureyri

Eignin skiptist í:

Íbúð 0303 er 72,1m² og er á þriðju hæð hússins vinstra megin við stigahús. Íbúðin inniheldur baðherbergi/þvottahús, anddyri, eitt herbergi, stofu, eldhús og geymslu.

Geymsla er 6,8m² á 1. hæð, svalir, sérmerkt bílastæði með rafmagnstengli og hlutdeild í sameign.

Innbyggð uppþvottavél fylgir íbúðinni.

Mynddyrasími er í íbúðinni

Ljósleiðari er tengdur úr sameign inn í hverja íbúð og þaðan í tengil í stofu.

Stærð: 72,1m²

Geymsla í sameign: 6,8m²

Svefnherbergjafjöldi: 1

Geymsla í íbúð: 1

Hæð: 3.

Íbúð 403 - SELD

Stekkjartún Akureyri

Eignin skiptist í:

Íbúð 0403 er 71,7m² og er á fjórðu hæð hússins vinstra megin við stigahús. Íbúðin inniheldur baðherbergi/þvottahús, anddyri, eitt herbergi, stofu, eldhús og geymslu.

Geymsla er 6,4m² á 1. hæð, svalir, sérmerkt bílastæði með rafmagnstengli og hlutdeild í sameign.

Innbyggð uppþvottavél fylgir íbúðinni.

Mynddyrasími er í íbúðinni

Ljósleiðari er tengdur úr sameign inn í hverja íbúð og þaðan í tengil í stofu.

Stærð: 71,7m²

Geymsla í sameign: 6,4m²

Svefnherbergjafjöldi: 1

Geymsla í íbúð: 1

Hæð: 4.

Íbúð 104 - SELD

Stekkjartún Akureyri

Eignin skiptist í:

Íbúð 0104 er 69,8m² og er staðsett vestan megin við stigahús á neðstu hæð hússins. Íbúðin inniheldur baðherbergi/þvottahús, anddyri, eitt herbergi, stofu, eldhús og geymslu.

Geymsla er 4,5m² á 1. hæð, verönd, sérafnotaflötur framan við verönd, sérmerkt bílastæði með rafmagnstengli og hlutdeild í sameign.

Innbyggð uppþvottavél fylgir íbúðinni.

Mynddyrasími er í íbúðinni

Ljósleiðari er tengdur úr sameign inn í hverja íbúð og þaðan í tengil í stofu.

Stærð: 69,8m²

Geymsla í sameign: 4,5m²

Svefnherbergjafjöldi: 1

Geymsla í íbúð: 1

Hæð: 1.

Íbúð 204 - SELD

Stekkjartún Akureyri

Eignin skiptist í:

Íbúð 0204 er 71,3m² og er á annarri hæð hússins hægra megin við stigahús. Íbúðin inniheldur baðherbergi/þvottahús, anddyri, eitt herbergi, stofu, eldhús og geymslu.

Geymsla er 6,0m² á 1. hæð, svalir, sérmerkt bílastæði með rafmagnstengli og hlutdeild í sameign.

Innbyggð uppþvottavél fylgir íbúðinni.

Mynddyrasími er í íbúðinni

Ljósleiðari er tengdur úr sameign inn í hverja íbúð og þaðan í tengil í stofu.

Stærð: 71,3m²

Geymsla í sameign: 6,0m²

Svefnherbergjafjöldi: 1

Geymsla í íbúð: 1

Hæð: 2.

Íbúð 304 - SELD

Stekkjartún Akureyri

Eignin skiptist í:

Íbúð 0304 er 71,9m² og er á þriðju hæð hússins hægra megin við stigahús. Íbúðin inniheldur baðherbergi/þvottahús, anddyri, eitt herbergi, stofu, eldhús og geymslu.

Geymsla er 6,6m² á 1. hæð, svalir, sérmerkt bílastæði með rafmagnstengli og hlutdeild í sameign.

Innbyggð uppþvottavél fylgir íbúðinni.

Mynddyrasími er í íbúðinni

Ljósleiðari er tengdur úr sameign inn í hverja íbúð og þaðan í tengil í stofu.

Stærð: 71,9m²

Geymsla í sameign: 6,6m²

Svefnherbergjafjöldi: 1

Geymsla í íbúð: 1

Hæð: 3.

Íbúð 404 - SELD

Stekkjartún Akureyri

Eignin skiptist í:

Íbúð 0404 er 72,1m² og er á fjórðu hæð hússins hægra megin við stigahús. Íbúðin inniheldur baðherbergi/þvottahús, anddyri, eitt herbergi, stofu, eldhús og geymslu.

Geymsla er 6,8m² á 1. hæð, svalir, sérmerkt bílastæði með rafmagnstengli og hlutdeild í sameign.

Innbyggð uppþvottavél fylgir íbúðinni.

Mynddyrasími er í íbúðinni

Ljósleiðari er tengdur úr sameign inn í hverja íbúð og þaðan í tengil í stofu.

Stærð: 72,1m²

Geymsla í sameign: 6,8m²

Svefnherbergjafjöldi: 1

Geymsla í íbúð: 1

Hæð: 4.

Íbúð 205 - SELD

Stekkjartún Akureyri

Eignin skiptist í:

Íbúð 0205 er 77,3m² og er staðsett vestan megin í miðju á annarri hæð hússins. Íbúðin inniheldur baðherbergi/þvottahús, anddyri, tvö herbergi, stofu, eldhús og geymslu.

Geymsla er 2,3m² á 1. hæð, svalir, sérmerkt bílastæði með rafmagnstengli og hlutdeild í sameign.

Innbyggð uppþvottavél fylgir íbúðinni.

Mynddyrasími er í íbúðinni

Ljósleiðari er tengdur úr sameign inn í hverja íbúð og þaðan í tengil í stofu.

Stærð: 77,3m²

Geymsla í sameign: 2,3m²

Svefnherbergjafjöldi: 2

Geymsla í íbúð: 1

Hæð: 2.

Íbúð 305 - SELD

Stekkjartún Akureyri

Eignin skiptist í:

Íbúð 0305 er 77,3m² og er staðsett vestan megin í miðju á þriðju hæð hússins. Íbúðin inniheldur baðherbergi/þvottahús, anddyri, tvö herbergi, stofu, eldhús og geymslu.

Geymsla er 2,3m² á 1. hæð, svalir, sérmerkt bílastæði með rafmagnstengli og hlutdeild í sameign.

Innbyggð uppþvottavél fylgir íbúðinni.

Mynddyrasími er í íbúðinni

Ljósleiðari er tengdur úr sameign inn í hverja íbúð og þaðan í tengil í stofu.

Stærð: 77,3m²

Geymsla í sameign: 2,3m²

Svefnherbergjafjöldi: 2

Geymsla í íbúð: 1

Hæð: 3.

Íbúð 405 - SELD

Stekkjartún Akureyri

Eignin skiptist í:

Íbúð 0405 er 77,0m² og er staðsett vestan megin í miðju á fjórðu hæð hússins. Íbúðin inniheldur baðherbergi/þvottahús, anddyri, tvö herbergi, stofu, eldhús og geymslu.

Geymsla er 2,0m² á 1. hæð, svalir, sérmerkt bílastæði með rafmagnstengli og hlutdeild í sameign.

Innbyggð uppþvottavél fylgir íbúðinni.

Mynddyrasími er í íbúðinni

Ljósleiðari er tengdur úr sameign inn í hverja íbúð og þaðan í tengil í stofu.

Stærð: 77,0m²

Geymsla í sameign: 2,0m²

Svefnherbergjafjöldi: 2

Geymsla í íbúð: 1

Hæð: 4.

Íbúð 206 - SELD

Stekkjartún Akureyri

Eignin skiptist í:

Íbúð 0206 er 86,0m² og er staðsett vestast á annarri hæð hússins. Íbúðin inniheldur baðherbergi/þvottahús, anddyri, tvö herbergi, stofu, eldhús og geymslu.

Geymsla er 2,0m² á 1. hæð, svalir, sérmerkt bílastæði með rafmagnstengli og hlutdeild í sameign.

Innbyggð uppþvottavél fylgir íbúðinni.

Mynddyrasími er í íbúðinni

Ljósleiðari er tengdur úr sameign inn í hverja íbúð og þaðan í tengil í stofu.

Stærð: 86,0m²

Geymsla í sameign: 2,0m²

Svefnherbergjafjöldi: 2

Geymsla í íbúð: 1

Hæð: 2.

Íbúð 306 - SELD

Stekkjartún Akureyri

Eignin skiptist í:

Íbúð 0306 er 86,0m² og er staðsett vestast á þriðju hæð hússins. Íbúðin inniheldur baðherbergi/þvottahús, anddyri, tvö herbergi, stofu, eldhús og geymslu.

Geymsla er 2,0m² á 1. hæð, svalir, sérmerkt bílastæði með rafmagnstengli og hlutdeild í sameign.

Innbyggð uppþvottavél fylgir íbúðinni.

Mynddyrasími er í íbúðinni

Ljósleiðari er tengdur úr sameign inn í hverja íbúð og þaðan í tengil í stofu.

Stærð: 86,0m²

Geymsla í sameign: 2,0m²

Svefnherbergjafjöldi: 2

Geymsla í íbúð: 1

Hæð: 3.

Íbúð 406 - SELD

Stekkjartún Akureyri

Eignin skiptist í:

Íbúð 0406 er 90,6m² og er staðsett vestast á efstu hæð hússins. Íbúðin inniheldur baðherbergi/þvottahús, anddyri, tvö herbergi, stofu, eldhús og geymslu.

Geymsla er 6,6m² á 1. hæð, svalir, sérmerkt bílastæði með rafmagnstengli og hlutdeild í sameign.

Innbyggð uppþvottavél fylgir íbúðinni.

Mynddyrasími er í íbúðinni

Ljósleiðari er tengdur úr sameign inn í hverja íbúð og þaðan í tengil í stofu.

Stærð: 90,6m²

Geymsla í sameign: 6,6m²

Svefnherbergjafjöldi: 2​

Geymsla í íbúð: 1

Hæð: 4.

Gögn og teikningar

Hér má finna ýmis gögn, s.s. grunnteikningar og teikningar af innréttingum.

Grunnmynd

1. hæð

Eldhús

(íbúð 102, 202, 302, 402, 206, 306, 406)

Baðherbergi

(íbúð 101-201-301-401)

Hjónaherbergi

(íbúð 102, 202, 302, 402, 103, 203, 303, 403, 204, 205, 305, 405, 206, 306, 406)

Grunnmynd

2-3 hæð

Eldhús

íbúð (103, 203, 303, 403)

Baðherbergi

íbúð (102, 202, 302, 402, 103, 203, 303, 403, 206, 306, 406)

Herbergi

vinstri

Grunnmynd

4. hæð

Eldhús

(íbúð 101, 301, 401)

Eldhús

(íbúð 104, 204, 304, 404)

Baðherbergi

(íbúð 104, 204, 304, 404, 205, 305, 405)

Herbergi

hægri

Eldhús

(íbúð 201)

Eldhús

(íbúð 205, 305, 405)

Hjónaherbergi

(íbúð 101, 201, 301, 401)

Anddyri

Skilalýsing

Skilalýsing þessi er hluti af kaupsamningi íbúða. Upplýsingar og myndefni í skilalýsingu geta breyst á byggingartíma. Allt efni og teiknaðar þrívíddarmyndir á heimasíðu eru birtar með fyrirvara um hugsanlegar villur. Með þrívíddarmyndum er reynt að gefa eins góða mynd og hægt er. Ef texta byggingarlýsingar og skilalýsingar ber ekki saman gildir byggingarlýsing.

Hönnuðir og byggingaraðilar

Arkitektahönnun:   Haraldur S. Árnason (HSÁ Teiknistofa)


Verkfræðihönnun:   Haraldur S. Árnason (HSÁ Teiknistofa)


Raflagnahönnun:   Raftákn ehf. Raflagnir:   Rafmenn ehf. Pípulagnir:  

Varmastýring ehf. Málning:   Málningarmiðstöðin ehf.

Uppsteypa og frágangur:   Lækjarsel ehf.

Frágangur innanhúss:   Böggur ehf.

Innanhússráðgjöf:   Jensson hönnunarhús, Ólafur Jensson

Byggingarstjóri:   Böðvar Kristjánsson

Byggingaraðili / Seljandi:   Stekkjartún 32 ehf.

Almennt um Stekkjartún 32

Húsið er samtals með 22 íbúðum. Íbúðirnar eru vandaðar og vel hannaðar. Íbúðirnar eru rúmgóðar og vel skipulagðar, en húsið er fjögurra hæða með lyftu. Íbúðirnar eru með opnar svalir sem snúa til suðvesturs. Flestum íbúðum fylgir sérmerkt bílastæði í opnu bílskýli. Í göngufæri frá húsinu eru framhaldsskólar, grunnskóli, leikskóli, sjúkrahúsið, verslunin Bónus, golfvöllur og frábærar gönguleiðir. Íbúðum verður skilað fullfrágengnum sem og sameign og lóð.

Frágangur utanhúss

Húsið skilast fullbúið að utan. Burðarvirki hússins er steinsteypt með hefðbundnum hætti og eru útveggir einangraðir að utan með 100 mm. steinull.

Klæðning Húsið verður klædd með með lituðu stáli, láréttri báru að mestu leyti. Litir útveggja eru í ljósgráum lit (Ral 7038) en stigahús í dökkgráum lit (Ral 7011). Viðarklæðning verður á veggflötum við svalir þar sem það á við.

Þak Þakplata er steypt með halla fyrir 200 mm. einangrun sem klædd er með tvöföldu lagi af þakpappa. Þakniðurföll með hitaþræði koma í þak en lóðréttar lagnir frá þeim eru staðsettar í lagnastokk innanhúss. Þakvirki er byggt úr 60 mm. forsteyptri „filegran“ plötu og ásteypulagi.

Svalir Svalagólf eru steypt með niðurfalli. Hitakapall er lagður frá toppi frárennslisrörsins og alla leið niður í jörð þannig að ekki myndist hætta á að frjósi í frárennsliröinu inní  utanhússklæðningingunni. Svalahandrið eru úr málmi, gleri og VIVIX plötum eða sambærilegum efnum. Á svölum íbúða er útiljós og rafmagnstengill. Einnig er til staðar auka lagnaleið sem t.d. mætti nota til geislahitunar á svalargólfi. Svalir íbúða eru útfærðar þannig að hægt sé með litlum tilkostnaði að koma fyrir svalalokunarkerfi. Svalalokun er á inngangssvölum.

Gluggar og Hurðir Ál/tré glugga- og hurðakerfið í húsinu er frá Byko.  Gluggar eru hefðbundnir ál/trégluggar með tvöföldu einangrunargleri. Gluggar eru ísteyptir. Útihurð íbúðar er með loftrist smíðuð úr timbri og með tvöföldu gleri og sett í eftir á. Rennihurð við svalir er úr áli að gerðinni Reynars monorail CP 130 með öryggisgleri. Gluggi við rennihurð gengur að gólfi. Opnanleg fög eru með barnalæsingu. Gluggar og útihurðir eru álklæddir að utan í dökkgráum lit (Ral 7011) og hvítir að innan.

Lóð Lóð umhverfis hús er graslögð þar sem við á. Gangstéttir eru steyptar/malbikaðar en bílastæði og akvegir malbikaðir. Snjóbræðsla verður í stæðum fyrir hreyfihamlaða og inngangsstéttum við hús. Íbúðum á 1. hæð fylgir sérnotasvæði samkv. teikningu. Seljanda ber ekki að skila lóð fullfrágenginni á sama tíma og íbúð er afhent.

Bílastæði og bílskýli Bílastæði eru alls 37. Opið bílskýli er við húsið að norðaustan. Skýlið er byggt úr stálsúlum/stálbitum og er þakið klætt 40mm þykkum samlokueiningum. Norðausturhlið þess er lokuð að mestu með gleri. Litur á þaki er ljósgrár. Íbúðum 2,3,4 hæða fylgir sérmerkt bílastæði í bílskýli. Íbúðum 1 hæð fylgir sérmerkt stæði næst húsi. Við öll sérmerkt stæði er rafmagnstengill, tengdur rafmagnsmæli viðkomandi íbúðar. Rafmagnstengilinn mætti t.d. nota við hleðslu rafbíla. Öll sérmerkt stæði eru breiðari en gengur og gerist.

Frágangur innanhúss

Íbúðum verður skilað með handslökkvitæki, reykskynjara og lyfjaskáp.

Gólf Milligólf íbúða eru byggð úr 60 mm. forsteyptri „filegran“ plötu og 14 cm. ásteypulagi. Ofan á steypt milligólf kemur 30 mm. hljóðeinangrun og 70 mm. járnbent írennsli en gólfhiti og vatnslagnir eru lagðar ofan á hljóðeinangrun gólfs. Með þessu næst hámarks hljóðeinangrun á milli hæða. Harðgert vínilparket eða harðparket með hljóðdeyfidúk er á gólfum íbúða, flísar eru á gólfum baðherbergis/þvottahúss.

Veggir Staðsteyptir veggir er spartlaðir og málaðir. Léttir innveggir eru úr tvöföldu gifsi og eru spartlaðir og málaðir. Fyrirkomulag innveggja er í samræmi við samþykkta byggingarnefndarteikningu. Veggir er málaðir í ljósum lit. Baðherbergisveggir er flísalagðir og málaðir, 10% málarahvítt 1000.

Loft Steypt loft er slípuð, spörtluð og máluð í ljósum lit, 2% málarahvítt 1000.

Innihurðir Hurðir er með lykillæsingu og hurðarhúnar er úr burstuðu stáli. Innihurðir er hvítsprautaðar með hefðbundnum hurðarkörmum og gereftum.

Eldhús Eldhús er fullbúið með tækjum frá AEG, þar með talið spanhelluborði, veggofni með kjöthitamæli, ískáp með stályfirborði, og vandaðri innbyggðri uppþvottavél. Zanussi stálvifta með vélrænu útsogi er í innréttingu. Stálvaskur í borðplötu.  Eldhúsinnrétting er íslensk sérsmíði frá AXIS með mjúklokunarbúnaði. Lýsing undir efri skápum.

Baðherbergi/þvottur Baðherbergisgólf eru flísalögð. Veggir eru flísalagðir upp í loft að undanskildum hurðarvegg sem er spartlaður og málaður í ljósum lit, 7% málarahvítt 1000 akríl. Baðinnrétting er íslensk sérsmíði frá AXIS með mjúklokunarbúnaði. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara. Gert er ráð fyrir þurrkara með rakaþétti. Hvít postulínstæki eru á baðherbergjum og salerni er vegghengt með innbyggðum vatnskassa. Sturtugólf er einhalla 90*90 cm með glervængjum . Blöndunartæki á baði eru hitastýrð einnar handar blöndunartæki. Lýsing er í lofti og í kappa yfir spegli.

Hreinlætistæki Öll hreinlætis- og blöndunartæki eru frá Tengi, af viðurkenndri gerð.

Svefnherbergi Stór og vel skipulagður fataskápur er í svefnherbergjum sbr. innréttingateikningar. Fataskápar eru íslensk sérsmíði frá AXIS með mjúklokunarbúnaði.

Forstofa Innrétting í forstofu er sbr. innréttingateikningar og er íslensk sérsmíði frá AXIS.

Geymsla og herbergi Fataskápur er í herbergi/geymslu sbr. innréttingateikningar. Fataskápar eru íslensk sérsmíði frá AXIS með mjúklokunarbúnaði.

Geymslur í sameign Hverri íbúð fylgir ein geymsla í sameign og eru þær á jarðhæð. Gólf í geymslum er máluð og veggir/skilrúm er málaðir, 7% málarahvítt 1000 akríl. Gólfhitakerfi og hefðbundin lýsing er í geymslum. Stærð geymslu kemur fram í eignaskiptasamningi og kaupsamningi. Hurðir eru hvítar. Fyrir framan geymslurnar er sameiginlegt rými sem getur nýst sem hjóla- og vagnageymsla.

Rafkerfi

Rofar og tenglar Rofar og tenglar (fyrir rafmagn, tölvu/síma og loftnet) eru settir upp í samræmi við raflagnateikningar. Tenglar í stofu eru, tölvutengill (ljósleiðari) fyrir 1 sjónvarpstengil og 1 símatengil. Ljósakúplar er á baði/þvottahúsi, geymslu og kappalýsing í innréttingum. Önnur ljós fylgja ekki innan íbúðar. Útiljós við innganga og svalir er frágengin. Öll ljós í sameign fylgja. Kaupandi leggur til önnur ljós. Mynddyrasími fylgir íbúðum á 2. 3. og 4. hæð. Í íbúðum 1. hæðar er dyrabjalla.

Ljósleiðari Ljósleiðari er tengdur úr sameign inn í hverja íbúð og þaðan í tengil í stofu. Í öðrum herbergjum eru lagnaleiðir fyrir tölvu/síma og loftnet.

Öryggiskerfi Hver íbúð er sjálfstætt brunahólf. Reykskynjari og handslökkvitæki er í hverri íbúð og hljólageymslu/sameign. Reykskynjari er á hverri hæð í stigahúsi.

Hita-, neyslu og loftræstikerfi

Íbúðir, sameign og geymslur er upphitaðar með gólfhitakerfi. Í baðherbergjum eru handklæðaofnar. Neysluvatnskerfi er frágengið með millihitara. (Með því að hita upp kalt vatn með hitaveituvatni má halda kísil og öðrum steinefnum í lágmarki). Vélrænt útsog er frá baðherbergi/þvottahúsi, eldhúsi og geymslum sameignar. Mjög hljóðlátar viftur frá Vent Axia eru á baðherbergi/þvottahúsi.

Sameign

Sameign er upphituð og fullfrágengin.

Anddyri stigahús Gólf er flísalagt og fullfrágengið með lýsingu. Loft og veggir er sandspartlaðir og málaðir í ljósum lit, 7% málarahvítt 1000 akríl. Póstkassar fyrir íbúðir 2-4 hæðar eru staðsettir í anddyri. Aðgengi að póstkassa er bæði innandyra og utandyra. Lýsing er fullbúin með tímarofa og/eða hreyfiskynjara.

Lyftur Lyfta frá Kone er í húsinu.

Stigahús Stigar í stigahúsi eru forsteyptir og eru tröppur og stigapallar teppalagðir en inngangspallar flísalagðir. Veggir og loft er sandspörtluð og máluð í ljósum lit, 7% málarahvítt 1000 akríl. Stigahúsið er með uppsettum handlistum og handriði. Gólfhiti er í stigahúsi. Tímarofi og/eða hreyfiskynjari stýrir ljósum í stigahúsi.

Sorp Sorpgerði er við húsið.

Til áréttingar

Lýsingu þessari er ekki ætlað að vera tæmandi um einstök atriði. Seljandi áskilur sér allan rétt til að gera efnis-, útlits- og tæknilegar breytingar meðan á byggingarframkvæmdum stendur.

Kaupanda er bent á að kynna sér eftirfarandi atriði vel:

* Að það gæti þurft að hreinsa sigti á blöndunartækjum nokkrum sinnum eftir að flutt er inn í íbúðina og fylgjast skipulega með niðurföllum í þvottahúsi, baði og úti á svölum. Gæta þarf sérstaklega að ekki frjósi í niðurföllum.

* Svalagólf er nauðsynlegt að sílanbera á ca. 2ja ára fresti ef þau eru ekki flísalögð.

* Nauðsynlegt er að olíubera timburklæðningu á svölum á ca. 3ja ára fresti.

* Nauðsynlegt er að smyrja lamir á opnanlegum fögum og svalahurðum svo þau festist ekki.

* Aðalhurð í stigahúsi verður að fylgjast vel með og umgangast þannig að engar þvinganir verði við umgang. Reglulegt viðhald er nauðsynlegt.

* Varast ber að setja plastfilmu eða merkingu á gler eða setja gardínur þétt að gleri vegna rakamyndunar og sprunguhættu.

* Í steyptum nýbyggingum er mikill raki sem mun hverfa á 1-2 árum. Nauðsynlegt er að útloftun í íbúðum sé góð og mikilvægt er að fylgjast með vatnsmyndun (dögg) innan á gleri. Til að forða því að vatn safnist saman neðst á glerinu er mikilvægt að hafa glugga lítillega opna til að tryggja útloftun, sérstaklega þegar tekur að kólna úti. Gæta skal þess ávalt að útloftun baðherbergis sé góð og að viftur séu hreinar og rétt stilltar.

* Íbúðirnar eru afhentar þrifnar en í sumum tilvikum gæti kaupanda reynst nauðsynlegt að framkvæma lokaþrif á íbúðinni. Ef þetta er ekki gert er hætta á að vatnið geti valdið skemmdum á gluggum, gólfefnum og málningu. Bent er á að hugsanlega þurfi að fara fram fínstilling á vélrænu loftræstikerfi og á hita- og vatnsstýrikerfi hússins eftir afhendingu íbúðar. Seljandi ber ekki ábyrgð á eðlilegri og venjulegri sprungumyndun í múr, steypu og timbri. Gera má ráð fyrir því að kaupandi þurfi að endurmála íbúð eftir nokkurn tíma þegar byggingin, þ.e. það byggingarefni sem í henni er hefur náð stöðugu ástandi. Við afhendingu skal kaupandi skoða íbúðina ítarlega. Ef einhverjir ágallar finnast skal kaupandi áður en hann flytur inn tilkynna fulltrúa fasteignasölunnar um þessa ágalla og jafnframt senda þá í tölvupósti til seljanda.



Íbúðarkaupendur gera sér grein fyrir að í sérgeymslum og öðrum geymslum geta verið lagnir í loftum og á veggjum sem nauðsynlegar eru vegna lagnaleiða hússins Seljandi áskilur sér allan rétt til að gera efnis-, útlits- og tæknilegar breytingar meðan á byggingarframkvæmdum stendur.

Skilalýsing þessi er hluti af kaupsamningi íbúða. Upplýsingar og myndefni í skilalýsingu geta breyst á byggingartíma. Allt efni og teiknaðar þrívíddarmyndir á heimasíðu eru birtar með fyrirvara um hugsanlegar villur. Með þrívíddarmyndum er reynt að gefa eins góða mynd og hægt er. Ef texta byggingarlýsingar og skilalýsingar ber ekki saman gildir byggingarlýsing.

Hunda- og kattahald Samkvæmt 33 gr. Laga um fjöleignarhús frá 1994 nr. 26 með síðari breytingum er hunda- og kattahald háð samþykki 2/3 hluta eiganda í fjöleignahúsi.
Stekkjartún 32 ehf. þinglýstur meirihlutaeigandi íbúða á 2-4 hæð vill taka það fram að hunda- og katthald er með öllu bannað á 2-4 hæð í húsinu. Ákvöðrun þessi gildir þar til húsfélag eða nýjir meirihlutaeigendur ákveða annað.

Bílskýli við Stekkjartún 32

Útsýni frá íbúðunum við Stekkjartún

Um Bergfestu byggingarfélag

 

Við byggjum af metnaði, vandaðar byggingar með þarfir íbúa í huga hvort sem það eru einstaklingar eða stórar fjölskyldur.

Íbúðirnar okkar eru hannaðar hagkvæmar í stærðum, nútímalegar og við vöndum valið á innréttingum og veljum gæða heimilistæki.